Ambassadors her Excellency Bryndis Schram
His Excellency Jon Baldvin Hannibalson
straipsniai apie Užupio Konstitucijos islandų kalba atidengimą:
Uzhupis TV videoreportage about unveiling of Constitution in Icelandic
Stjomarskrá Uzupis
1 Allir eiga rétt á að búa við ánna Vilnelé og áin Vilnelé á rétt á að streyma hjá
2. Allir eiga rétt á heitu vatni, hlýjum húsakynnum að vetri til og þaki yfir höfuðið
3. Allir eiga rétt á að deyja, en það er ekki skylda
4. Öllum er heimilt að verða á mistök
5. Allir eiga rétt á að vera öðru vísi
6. Allir eiga rétt á að elska
7. Allir eiga rétt á að vera ekki elskaðir, en ekki endilega
8. Allir eiga rétt á að vera hvorki eftirtektarverðir – né alræmdir
9. Allir eiga rétt á að vera latir og nenna engu
10. Allir eiga rétt á að elska kisu og annast hana
11. Allir eiga rétt á að annast hundinn sinn uns dauðinn þá aðskilur
12. Hundur á rétt á að vera hundur
13. Ketti er ekki skylt að elska eigenda sinn, en ber að leggja honum lið á neyðarstund
14. Allir mega varpa af sér oki ábyrgðarinnar – endrum og eins
15. Allir eiga rétt á að efast, en það er engum skylt
16. Allir eiga rétt á að vera hamingjusamir
17. Allir eiga rétt á að vera óhamingjusamir
18. Allir eiga rétt á að þegja
19. Allir eiga rétt á að trúa
20. Enginn á rétt á að beita valdi
21. Allir eiga rétt á að játa vanmátt sinn
22. Enginn er eilífur
23. Allir eiga rétt á að leita skilnings
24. Allir eiga rétt á að skilja ekkert
25. Allir eiga rétt á að vera af hvaða þjóðerni sem er
26. Allir eiga rétt á að halda upp á afmæli sitt eða ekki
27. Allir eiga að geta sagt til nafns
28. Allir mega deila því sem þeir eiga
29. Enginn má deila því sem hann ekki á
30. Allir eiga rétt á að eiga bræður, systur og foreldra
31. Allir eiga rétt á að vera óháðir
32. Allir bera ábyrgð á eigin frelsi
33. Allir eiga rétt á að gráta
34. Allir eiga rétt á að vera misskildir
35. Enginn má skella skuld á annan
36. Allir eiga rétt á að vera sjálfs sín herrar
37. Allir eiga rétt á að hafa ekki rétt fyrir sér
38. Allir eiga rétt á að lifa án ótta
39. Lát ekki kné fylgja kviði
40. Bjóddu hinn vangann
41. Gefumst aldrei upp